Viðburðir & Umboðssala
Viðburðir og Umboðssala
Ég hef notið þeirra forréttinda að búa til skartgripi fyrir einka- og viðskiptaviðburði víðsvegar að úr heiminum sem hafa haldið viðburði sína hér á Íslandi. Þetta hefur verið allt frá litlum einkaviðburðum og brúðkaupum - yfir í stærri fyrirtækjaviðburði eins og ráðstefnur og verðlaunaafhendingar.
Einnig hef ég stundum tekið að mér að gera pantanir fyrir Hótel og Gististaði gegn samkomulagi, ásamt því að gera sérstakar vörulínur fyrir minni búðir hér á Íslandi. Ég hef reynt að passa að vörurnar mínar séu aðeins á vel völdum stöðum en endilega hafið samband ef þið viljið selja vörurnar mínar í ykkar heimabyggð.
Ef þú vilt vita meira, hafðu þá samband við mig á netfanginu: jenny@lavarockreykjavik.com